Ferð til fjár
Í dag pantaði ég flug til Íslands frá Danmörku til þess að heimsækja fjölskylduna yfir jólin. Ég verslaði við Icelandair í þetta skipti og pantaði flugin í gegnum vefinn icelandair.is. Ég byrjaði á því að leita að báðum flugum í einu með því að velja báðar leiðir eins og ég geri venjulega og fékk eftirfarandi verðtilboð eins og Mynd 1 hér að neðan sýnir. Myndin er tekin af vef icelandair.is.
Það vill svo til að ég fer ekki einn frá Íslandi til Danmerkur aftur svo mig vantaði einnig stakan flugmiða aðra leið frá Íslandi til Danmerkur, svo ég leita einnig að flugmiða aðra leið, þ.e.a.s. frá Íslandi til Danmerkur og þá fæ ég verðtilboðin á Mynd 2.
Þá er mikið ódýrara að panta flugin sitt í hvoru lagi! Ef myndir 1 og 2 eru bornar saman sjáum við að það kostar 41.711 kr. að fljúga frá Keflavík til Kastrup þegar maður kaupir tvö flug í einu en það kostar 36.000 kr ef aðeins eitt flug er pantað í einu. Sama flugið. Það munar 5.711 krónum eða um það bil 14%.
Nú flýgur maður ansi oft hér á milli og maður spyr sig: Hvað er Icelandair búið að svíkja af manni mikla peninga í gegnum tíðina með svona brellum?
Hjörtur Sigurðsson
// Breytti orðalagi, ég pantaði ódýrari flugin, pöntuð stök.








What! djöfulsins rugl er þetta. Alveg fáránlegt.
Ætlaru eitthvað að gera í þessu?
Ég pantaði flugin í stöku lagi. En þetta er fáránlegt því ég geri ráð fyrir því að algengast sé að fólk panti flugin bæði í einu og sé ekki að athuga hvort það sé dýrara eða ódýrara að panta þau í stöku lagi.
Sæll
Fékkstu bæði flugsætin heim á 36þús til baka til DK? Eða hækkaði seinna flugsætið?
Ég fékk bæði sæti á 36.000 því ég var ekki alveg búinn að panta fram og til baka flugin. Þetta var kannski villandi orðalag hjá mér. En ef ég hefði pantað báðar leiðir í einu þá hefði ég fengið annað á 41.711 kr. og staka flugið á 36.000 kr.
Mér finnst þetta pirrandi því ég panta nefnilega iðulega fram og til baka í einu.
Þetta er nú eitthvað skrítið. Ég flýg minnst þrisvar á ári á milli REK og FRA og bóka alltaf báðar leiðir, því það væri ódýrar. Fyrir nokkrum dögum bókaði ég til FRA 2.11.09 og til baka 11.1.10. Verðið báðar leiðir ISR 40.700. Núna tékkaði ég á verðinu miðað við tvisvar sinnum aðra leið og útkona er IKR 89.121.
Sem sagt, athuga málið vel.
Athyglisvert. Ég er einmitt í sömu sporum, er að kaupa flug heim yfir jólin frá New York. Ég er að spá í að fljúga heim 18 des og fara aftur út 4 jan. Þetta kom í ljós:
Báðar leiðir saman:
NYC -> RVK: $421
RVK -> NYC: $528
Total: $949
Í sitthvoru lagi:
NYC -> RVK: $473 (þetta dýrara)
RVK -> NYC: $446 (þetta er ódýrara)
Total: $919
Þannig að niðurstaðan í þessu tilviki er líka sú að það er ódýrara að kaupa flugin stök…
Takk fyrir þetta Hjörtur!
Bestu kveðjur,
Bjarni
Ég gái alltaf að hvoru tveggja, og ber líka verð saman við Iceland Express. Fann út meðan ég bjó í Kaupmannahöfn að stundum var ódýrara að bóka á icelandair.dk, stundum á icelandair.is og eftir að Icelandair fór að selja stök flug á skikkanlegu verði hefur oft komið fyrir að ódýrara væri að panta flugin stök. Ég hef a.m.k. tvisvar pantað flug út með Icelandair og heim með Icelandexpress.
Ég held frekar að þetta sé tilviljun en þeir séu að reyna að stela peningum. Hefði að vísu alveg trúað því uppá Icelandair meðan að Gunnlaugur Sigmundsson og Benedikt Sveinsson áttu fyrirtækið. En ég var að kaupa ferð fram og til baka til London og pakkinn kostaði ca.37.000 kr. Síðan keypti ég aukamiða (nokkrum mín . síðar) með sama heimflugi og hann var þá dýrari. 24.000 ca. Svo í mínu tilfelli borgaði sig að taka miðann fram og til baka. Nb. flugmiðinn út kostaði ca. 16.900 svo ferðin heim var á ca. 20.000kr.
Já, það er ekki víst að Icelandair sé að reyna að svindla. En sumt hjá þessu fyrirtæki er svolítið mikið svona “afþvíbara”.
Seinast þegar ég var á Íslandi ílengdist ég örlítið og þurfti að breyta miðanum mínum. Þá þurfti ég að borga himinhátt breytingargjald vegna þess að ég pantaði miðann frá Danmörku en ekki öfugt. Mig minnir að venjulegt breytingagjald sé um 10.000 krónur fyrir miða keypta á Íslandi en ég þurfti að borga gjald sem var að mig minnir vel yfir 20.000 ísk vegna þess að fyrraflugið sem ég keypti var til Íslands en ekki frá Íslandi og svo kom auðvitað ofan á það verðmunurinn á flugunum.
Það borgaði sig fyrir mig að kaupa nýtt flug hjá icelandexpress þá.
Jahá, ágætt að vita af þessu. Takk fyrir þetta Hjöss.
Þegar ég er að kaupa miða á netinu geri ég einmitt töluverðan samanburð bæði varðandi icelandair og svo ie og með að panta stakan eða fram og til baka miða. Þetta kemur einfaldlega út mjög mismunandi. Oftast nær er fram og til baka ódýrara, en einstöku sinnum kemur stakur miði út betur. Finnst ólíklegt að þetta sé eitthvað allsherjar samsæri þar sem þetta kemur oftast út á hinn háttinn.
Aftur á móti finnst mér merkilegt hvað Icelandair hefur lengi komist upp með það að láta ferðir kosta mismikið eftir því hvort það er pantað frá .com eða .is
Með því að leita á http://www.dohop.com fæst í einu lagi samanburður á því að kaupa stakar ferðir og fram og til baka, bæði hjá Icelandair og Express. Þar fáið þið einnig uppgefið verð á Icelandair flugi frá online ferðaskrifstofum eins og eBookers og Terminal A en þeir selja flugið stundum ódýrara en Icelandair.
Icelandair eru líka kræfir í því að þó þeir séu farnir að selja staka miða, þá kostar minna að kaupa far fram og tilbaka heldur en bara aðra leiðina. Það finnst mér rán um hábjartan dag!! Var með gesti hér hjá mér í Noregi sem pöntuðu sér flug heim og fengu ódýrari miða með því að kaupa miða fram og tilbaka frekar en að kaupa bara miða aðra leiðina!
[...] Ferð til fjár Í dag pantaði ég flug til Íslands frá Danmörku til þess að heimsækja fjölskylduna yfir jólin. Ég verslaði [...] [...]